Um okkur

Um okkur



Bullseye er nýr og einstaklega skemmtilegur valkostur í skemmtanalífinu. Staðurinn er einstakur á heimsvísu,

okkur er ekki kunnugt um neinn stað með jafn mörgum

spjöldum og fjölbreyttu þjónustuframboði.


Á annarri hæð (gamla Silfurtunglið) erum við með átta

píluspjöld (Partýpíla™, Keppnispíla) sem hægt er að bóka. Þar eru einnig fjöldi borða fyrir gesti og gangandi sem eru óbókanleg.


Á jarðhæðinni (Himinhvolf) eru tíu píluspjöld (Partýpíla™,

Keppnispíla) sem flest hægt er hægt að bóka.  Þar er einnig

fjöldi borða fyrir gesti og gangandi sem eru óbókanleg.


Í Bláa salnum (gamla bíósalnum á milligólfinu) sem opinn

er að staðaldri um helgar (fös, lau) og dagana fyrir almenna

frídaga erum við með 24 Skemmtipíluspjöld sem þarf

að bóka.  Þar er einnig fjöldi borða sem eingöngu eru

ætluð gestum Bláa salarins.


Athugið að ef til stendur að borða hjá okkur, þá gerum við

ráð fyrir að það sé gert á meðan leikið er.  Þá er ráðlegt

að bóka tvo tíma í pílu. 


Komdu til okkar á stefnumót, í gæsun/steggjun,

með vinahópinn, saumaklúbbinn eða bumbuboltann,

afmælisgestina, gömlu skólafélagana eða samstarfsfólkið!


Pílukast er frábært hópefli og afþreying sem framkallar

endalausan hlátur og stemningu.  Nýgræðingar ná nokkrum

tökum á sportinu eftir fáein köst og gleðin ræður ríkjum

allan tímann.



Rekstraraðili Bullseye:
Tales from Iceland ehf.

Snorrabraut 37 105 Rvk
Kennitala 700317-1450
Virðisaukanr. 128757
Sími: 454-6000

[email protected]



Share by: